blettur til framfara fyrir gomlu og dýrið

1.05.2005

Pappakassinn og dungí dungí lögunar-aðferðir

Viðgerðir á pappakassanum mér standa enn yfir. Fór í gær jurta apotekið! hhmm Gamla móttækileg fyrir öllu og konunni tókst að selja mér hafra duft og olíu sem ég átti að úða yfir mig og koddann minn! Trillaði mér í gymmið og lá meðvitundarlaus í pottinum á eftir.. bara unaður!... Eftir minn skammt af ruv og skjá einum og orðin græn eftir daginn var komin timi til að hakka í mig þvi sem ég keypti í apótekinu. Byrjum á þvi verra! Hafrar í duft formi.. hrærðir út í volgt vatn...hhmmm fyrsti sopin var alls ekki sem verstur en OMG hvað þetta er ógeðslegt á þriðjasopa... kom þessu oní mig með herkjum og viðbjóði.. allti í þeirri trú að þetta væri svo hollt og gott fyrir mig!!!!... svo seinna trikkið sem eg borgaði lika fyrir.... Olían..Angaði eins og apotekið þegar ég fór að sofa :( damn hvað það var vond lykt af mér! En hörmungarnar stóðu nú yfir bara í stutta stund þvi það leið fljótlega yfir gömlu enda ekki annað í boði þegar koddi og sæng er nálægt. Þar sem allt þarf að gerast strax hjá mér þá bjóst ég að sjálfsögðu við að vakna bakverkjalaus í morgun!!!!! Auðvita!! ég meina.. úða á mig ólyktandi, drekk hafradrykk og borga fyrir það!!!! en nei mei.. sami pappakassinn í dag!

0 Comments:

Post a Comment

<< Home